Ef dagurinn í dag væri kvikmynd mundi hann heita November strikes again! Eða revanges of November! Því að þegar ég vaknaði, tiltölulega snemma eftir skapandi nótt, var kominn snjór í Esjuna. Ég hafði ekki tekið eftir því að það snjóaði, allavegana ekki meðan ég var að mínu bardúsi til klukkan 3. Svo þegar ég vaknaði og ætlaði að fara út að skokka (jamm loforð um að koma skrokkinum í lag) þá var bara of hvítt úti til þess að ég meikaði það. Skreið þess í stað aftur undir rúm og dottaði. Var svo að vakna aftur og ennþá er snjór í fjallinu, ennþá er kalt. Ég held að þetta sé fyrirbboði eða tákn. Tákn um að að ég eigi ekki að vera að breyta mér. Tákn um það að ég eigi að láta allar aðrar skriftir í friði nema þetta blogg. Tákn um það að það borgi sig ekki að vera edru eða að hugsa um líkamann... Æji, ég veit það samt ekki?
Nú þarf ég bara nýtt plan til þess að fá þennann dag til þess að líða. Og þetta líf.
![]() |
Esjan komin í hvítan kufl að nýju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er alveg rétt, litli púki!
Hrólfur Guðmundsson, 21.5.2007 kl. 12:01
hvernig væri að skella sér bara í ræktina og fara lyfta ? ? Pungurinn hér að ofan getur jafnvel orðið lyftingarfélagi þinn ;)
Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir, 21.5.2007 kl. 12:37
Kannski fer ég að lyfta en ekki með þessum klámkarli. Hann mundi fitla við mig í sturtunni!
Hrólfur Guðmundsson, 21.5.2007 kl. 12:46
Er ekki í lagi Hrólfur að finna bara hinn gullna meðalveg? Þe að vera arfa-anstyggilegur og arfa-góður í bland. Sko bara í bland. Öfgastefnur eru dæmdar til að mislukkast!
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2007 kl. 14:44
Er ég einhverntíman slæmur? Stundum pirraður en aldrei vondur!
Hrólfur Guðmundsson, 21.5.2007 kl. 15:43
Emil, þú ert ekki það sem Guð hafði í huga þegar hann útdeildi MÁLFRELSINU!
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.5.2007 kl. 15:53
Ef hann hefði ætlað dýrum mál mundu hundarnir líka tala.
Hrólfur Guðmundsson, 21.5.2007 kl. 16:05
Þú ert góður maður Hrólfur.
Varðandi ræktina er ég sammála Sunnu Hlín með það.
Magnús Paul Korntop, 21.5.2007 kl. 16:44
Takk Magnús, takk!
Hrólfur Guðmundsson, 21.5.2007 kl. 16:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.