Sturtið mér niður um klósettið

Þannig vil ég fara.  Eins og hvar annar kúkur út á hið víðáttu mikla haf.  Nafnlaus og öllum gleymdum.  Fljótandi innan um annað sorp sem demt er í hafið sama hvað mikið allir Ómarar Ragnarsynir reyna að troða því inn í hausinn á fólki í súrealískum Kastljósþáttum um allan heim að við séum að drekkja þessari plánetu í saur.  Hvernig er annað hægt þegar fólk er anvanafætt andlega og lyktar allt illa?  Líka þeir sem dubba sig til riddara undir þeim merkjum að þeir séu að reyna að bjarga.  Það eina sem þeir vilja er klapp á bakið og vellaunað starf.

mbl.is Scotty skotið út í geim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríka pakk 2

Ekki var fjallað um það þegar ég skrifaði undir leigusamning hérna í Seljunum?  Ekki var fjallaðu um það þegar ég vaknaði áðan með andlitið ofan í hálfétnum hamborgara og sígarettustubbum sem oltið höfðu úr öskubakkanum sem ég hafði með mér upp í rúm.  (Ég veit að það er ósiður að éta og reykja fullur uppi í rúmi.) Ekki var fjallað um mig þegar Hrefna bikkja pakkaði öllu ofan í töskur, poka og kassa og flutti úr meðan ég var grunlaus að horfa á Liverpool-Everton á barnum.  Ekki var fjallað um mig þegar ég slasaðist á baki.  Svona gæti ég lengi þusað áfram.  Samt er ég ekki verri maður en Jóna Ásgeir og þeir allir sem þéna þúsundfallt ég á dag.  Ég á á líka skilið virðingu!  Eða er það ekki?

Annars var ekkert til að borða þegar ég vaknaði og rúmið mitt er viðbjóður.  Ég lýg því ekki viðbjóður.  Aska og koktelsósa út um allt.  Ætla að handa af því og fá mér svo einn bjór.  Á 2 missed calls síðan ég sofnaði í dag.  EItt frá mömmu.  Eitt frá Reyni.  Eitt frá Hrefnu.  Ætla ekki að svara neinum af þessum fyrr en eftir smá blund og tvo bjóra og eitthvað að éta.  Held samt að ég hringi (Reynir ef þú lest þetta þá geturðu líka kommentað á mig) ekki í Hrefnu.  Djöfull er ég þreyttur.  Með hausverk.  Óglatt.  Og fokkings sól úti.


mbl.is Fjallað um fasteignakaup Jóns Ásgeirs í New York Times
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn og aftur lygar

Þessi frétt er heimskuleg, það var ekki víkingaskip sem brann heldur eftirlíking af því.  Það væri eins og að flytja frétt af dauða órangútu í dýragarði: karlmaður á besta aldri lést í morgun!

Annars var ömurlegt á djamminu í gær.  Fór á Kaffibarinn með Reyni og rakst á Hrefnu.  Hún sagði hæ, hvernig hefurðu það?  Ég svaraði: ertu búin að fitna?  Fórum þaðan í fússi á Dillon.  Enginn Harrison Ford þar að þessu sinni, bara miðaldra tannlæknir sem er orðinn svo langdrukkinn að ég hef heyrt að hann geri sjálfur við verkfærin sín og noti ryksugu til að sjúga vatn úr munni skjólstæðinga sinna.  ÞAr fékk ég blakkát.  Rankaði við mér í eftirpartýi í miðbænum, alveg í keng á einhverju sem líktist sófa með eitthvað sem líktist kvennmannshönd um lærið á mér.  Kom mér út í sólskinið og upp á Hlemm þegar ég hafði áttað mig á því hvar ég var.  Tók strætó hingað heim. Hafði vit á því að æla í klósettturninum áður en ég fór í bössið.  Keypti mér sígarettur og hamborgara hérna á hroninu.  Er að fara að sofa ef ég get sofnað fyrir sólinni. 

Eigiði góðan dag elskurnar. 


mbl.is Víkingaskip brann til kaldra kola í miðborg Stokkhólms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítt pakk

Ég verð að viðurkenna það að ég varð dálítið sár fyrr í dag þegar einhver Sigurður kallaði mig hvítt pakk dauðans í kommentakerfinu.  Ég veit ekki hversvegna hann gerði það?  Kannski af því að ég skil ekki Guð?  Kannski af því að ég bý í Breiðholtinu?  En ég bý nú þar bara tímabundið enda ódýrara að vera þar neðanjarðar en á vinnukonulofti á Njálsgötunni.  Verðandi svo kannski nágranni ógæfumanna.  Nei, ég er vandur að virðingu minni og stefni hátt.  En kannski er það það sem allt hvítt pakk segir?  Situr á tröppunum á hjólhýsinu sínu á einhverri flöt í suður Dakota og drekkur Jack af stút og sver að eftir ár sé það búið að meika það.  Komið með vinnu við að moka kolum upp á vagn eða búið með námskeið í að setja gerfineglur á feitar kerlingar!

Mig dreymir nú bara um að læknast í bakinu. 

Og kannski almennilegan kvennmann.

Annars valt Reynir inn úr dyrunum fyrir tæpum klukkutíma.  Með tvær flöskur af rauðvíni sem hann sagði að hefði verið á tilboði í ríkinu.  Ég vissi ekki að það væri útsala þar.  Við erum að verða búnir að tæma þær og þá strætó í bæinn.  Það er heilsdagslaun verkamanns að taka taxa héðan og niður í bæ.  ÞEssvegan er það eiginlega algjört möst að hösstla eitthvað svo maður þurfi ekki að splæsa í far heim.  Ekki geng ég þetta svona á mig kominn.  Það ætti að vera subway í þessari borg til að koma manni hingað í helvítis útnárann eftir djammið.



Ríka pakk

Það er einmitt lið eins og Björk sem þarf ekki að vinna og á peninga eins og Satnaa má vita hvað sem getur haft skoðanir á umhverfismálum.  Þegar ég segi skoðanir, þá á ég við að geta staði í hring uppi á hálendi og farið með ljóð eða táknrænann gjörning og mótmælt því að nokkur melbörð fari undir vatn.  Fólk sem á peninga getur haft áhyggjur af steinum og stráum.  Jafnvel tíma til þess að heimsækja svoleiðis staði.  Fólk sem á paninga og Ómar Ragnarson sem var alltaf syngjandi heimskulegar vísur og var því sendur upp á ha´lendi til að ergja ekki alvöru fréttamenn á RÚV!

mbl.is Björk gremst stóriðjuframkvæmdir á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers í andskotanum stjórnmál?

Hef aldrei skilið pólítík en oftast bara kosið D vegna þess að það stendur fyrir Davíð og pabbi keyrir stundum fólk á kjörstaði.  Mér finnst samt heimskulegt að hafa alþingi og rúmlega 6o manns á ofurlaunum að rífast um hálendið og vexti og annað krapp.  Best væri að hafa hérna bara menntaðann einvald.  Þó ekki herskáann eins og Friðrik mikla og alls ekki Ómar Ragnarson, það væri ekki cool ef hann færi allt í einu að leika Gttarþef eða syngja sveitaball á fundi ráðamanna erlendis.  Bara einhvern með viti sem kann að skrifa nafnið sitt.  Ég hef fátt að gera og gæti tekið þessu djobbi með litlum fyrirvara!


mbl.is Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilög Di og hárið á henni

Ég man ekki betur en þessi verðandi þjóðardýrlingur þeirra Breta hafi dáið í miðju framhjáhaldi eða svo sem næst.  En það man það enginn lengur nema kannski drottningin?  Og glaeraugnahomminn með hárkolluna.  En hann lofaði því að flytja þetta væl ekki oftar opinberlega fyrir tíu árum.  En loforð gefin til minningar um dýrling má brjóta.  Hvernig ætli ég yrði annars ef ég fengi mér svona hártopp?  Og skyggð gleraugu?  Karlmennskan uppmáluð?  Varla?  Kannski ætti ég bara að fá mér hár eins og Díana, það var mögnuð kolla sem hún var með.  Svona álíka kjarnorkusperengjuhellt og hárið á Elvis.  Hárið á Di var eins og einhver hefði hellt sagi í fötu fulla af lími og slett því svo á aumingjakonuna.  Konun sem svo leyfði einhverjum arabatitt að kokkála greyið Karl sem ég held að sé mikilmenni af sama kalíberi og nafni hans sem þingið lét hálfshöggva fyrir fáeinum árum!  
 
Annars er þetta lag Candle in the wind eitt það leiðinlegasta sem glumið hefur í útvarpinu, álíka og lagið hannar Celine Dion um hjartað sem heldur áfram eftir að öll skip sökkva eftir árekstra við ísjaka.  Þetta drasl vann ég við að senda út um allt land, yfirleitt sömu staði og plötur með Bubba og Ómari Ragnarsyni sem vill ekki vera bloggvinur minn og fær því ekki mitt atkvæði.  Ætli ég hendi því ekki bara í Geir Haarde af gömlum sið.
 
Reynir boj hringdi um leið og ég settist ferskur niður að drekka bjór og blogga og stakk uppá því að við mundu fara út að borða áður en við förum á djammið.  Ég mótmælti því. Er ekki mjög fjáður svona seitn í mánuðinum og nennti ómögulega að fara betlrúntinn í dag.  Rigning úti og leiðinlegt að bíða eftir strætó og allt það vesen og dagurinn hefði farið allur í það.  Svo það er bara drykkja fyrir framan tölvuna þanngað til Reynir kemur (hann er í Árbænum, tímabundið hjá gamla liðinu) og svo bara sá guli beint í bæinn.  Nema bara að allir staðir eru þreyttir og leiðinlegir og hvergi svipuð stemning eins og var á 22 eða Kaffibarnum á milli 97 og 99 eða á Hressó og Tunglinu þar á undan.  Svo maður tali ekki um gamla Rósenberg.  Ekki get ég farið inn á skítapleis eins og Sirkús þar sem allar stelpur eru klæddar og með hár eins og Díana árið 1984 og aðrir staðir ekki betri.  Hvergi hægt að dansa á snjáðum hermannaskóm.  Núna er bara skást á Grandrokk eða heima.  Heimur versnandi fer.         
 

mbl.is Sir Elton flytur Candle in the Wind á minningarathöfn um Díönu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öldungar og trú

Það er gamalsmanns gaman að trúa á Guð.  Enda er ekki hægt að verðað páfi fyrr en maður er orðinn svo elliær og kalkaður að í öllum siðmenntuðum þjóðfélögum er maður komin á stofnunn nema í Vatíkaninu, þar er maður krýndur veraldlegur keisari með beint netsamband við Guð.  Dálítið eins og egifskur faraó.  Þeir voru jú guðir.  Páfarnir haf nefnilega hagað sér dálítið þannig.  Sérstaklega sá sem fæddi barn á miðöldum.  En hann var höggvinn í bita eða hengdur eða brendur en ekki tekinn í tölu dýrlinga enda ekki um kraftaverk að ræða, frekar svik konu.  Þannig hefur kirkjan alltaf brugðist við gagnrýni á sig.  með því að drepa þá sem gagnrýna.

Annars er ég að hugsa um að vera svo guðlaus í kvöld að fara og drekka mig fullann með Reyni boj æskvini mínum.  kíkja á einhverja bari.  Reyndar erfitt að fara á djammið í dag, allir þessir staðir orðnir hálf leim og fullir af krökkum.  Svona eins og menntaskólaball í denn.  Mikið meira vit í partýum. 


Forgarður helvítis

Gott að það er komið á hreint.  En hvernig frétti páfi af þessu?  Fékk hann símhringingu úr neðra eða bara email?  Kannski svona mail sem bauð honum frítt viagra og neðanmáls stóð:  ungabörn sem deyja óskírð fara ekki lengur til vítis!

Kaþólska kirkjan er furðulegur brandari. 

 


mbl.is Óskírð börn ekki lengur í forgarði vítis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að betla kaup

Maður sér á þessari frétt að Kaká vill yfirgefa sökkvandi skútu og stíga um borð í nýtt fley.  Svona eru þessir Brassar.  Enda engir svoleiðis málaliðar í mínu liði.  

mbl.is Kaká: Manchester United spilar brasilískan fótbolta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband