Næst: fjölskylduleyndamál

Mamma er komin á stjá á efrið hæðinni.  Hún er ennþá í náttkjólnum en núna er hún líka orðin uppdópuð af morfíni, alveg stjörf og gengur um með brúðakjólin sinn í fanginu og strýkur honum, hvíslar:  Þegar ég kynntist James Tyrone þá varð allt gott um sinn...
 
Stopp.  Ég ætla ekki að láta þetta hljóma eins og eitthvað eftur Eugene O´Neill.  
 
Mamma er í náttsloppnum, ranglar um með flösku á vodka í hendinni og keðjureykir og öskrar: ég er ófullnægð!  Ég er ófullnægð!  Hrólfur!  Hvar ertu?  (Grýtir flöskunni í vegg með þeim afleiðingum að flaskan brotnar.) 
 
Stopp.  Of grískt.  Eða of íslenskt?  Skiptir ekki máli.  Þetta er að verða búið og bara tilhneyging til þess að draga skemmtunina á langin, þá sem lesa, örlíið lengur á eyrunum...
 
Mamma enn á stjái á efri hæðinni.  Tekur upp síman sem er ótengdur, hnígur hægt niður á gólfið með símtólið í ananri hendi, símann í hinni og byrjar að tuldra:  Elskan mín, elskan mín, ferður ekki að koma, ég er búin að vera svo ein, svo ein... (Það kveiknar í fyrir aftan hana, eldtungur læsast í gluggatjöld).
 
Guð hvað ég er feginn að hafa ekki reynt að gera skriftir að lifibrauði mínu.  Kannski ég sæki um á Kleppi þegar þetta er afstaðið? 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Farðu nú að koma með þetta

V (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 17:47

2 identicon

Hvert er leyndamálið?

Ragga (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 18:11

3 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Þetta er snilld...muhahahaha!

Eva Þorsteinsdóttir, 23.5.2007 kl. 18:55

4 Smámynd: halkatla

ég er með þvílíkar áhyggjur!!!!!

halkatla, 23.5.2007 kl. 19:10

5 identicon

Kleppi? Það eru biðlistar þar inn. Auðveldara að fara úr landi en að komast inn á geðdeild á íslandi. Vantar þig fyrir farinu? Skál Hrólfur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 19:36

6 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Klepparaþing, Klepparaþing:

http://emil.blog.is/blog/emil/entry/217741/#comment371293

Hrólfur Guðmundsson, 23.5.2007 kl. 19:46

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég var að segja á öðru bloggi hvað þú ert mikið krútt

Kristín Katla Árnadóttir, 23.5.2007 kl. 20:05

8 Smámynd: Stríða

Hrólfur, ég ætla inn á klepp ef þú byrjar að vinna þarna

Stríða, 23.5.2007 kl. 20:06

9 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Kristín: hvað bloggi?

Stríða:  Eða deilir með mér herbergi? 

Keli: er að fara að ropa.  Bjór. 

Hrólfur Guðmundsson, 23.5.2007 kl. 20:35

10 Smámynd: Stríða

Skál

Stríða, 23.5.2007 kl. 21:07

11 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Bjór skal það vera.

Hrólfur Guðmundsson, 23.5.2007 kl. 21:13

12 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Ertu enn að flækjast hérna gamli graðnagli?

Hrólfur Guðmundsson, 23.5.2007 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband