Var að horfa á þessa aumu Evróvisíonkeppni áðan er ennþá ekki vissum hvort að atrið Breta hafi veriði enhver póstmódernísk skilaboð um hætturnar á því að fljúga á milli landa og lenda á Stansted eða hvort að framlag þeirra hafi bara verið "venjulegt" atriði í geldri söngvakeppni. Vitandi það að Morrissey hafi fallið á hnéin og beðið um að vera sendur út með söng um það hversu erfitt það er að vera ungur hommi og hraksmáður í London sem eflaust hefði kætt alla sjónvarpsáhorfendur en honum var hafnað, honum var hafnað.
Hvað um það, ég er leiður, skál! Gin í tebolla aftur. Óblandað. Ég keypti mér hatt í dag.
Fannst samt eins og flestar þjóðir hafi sent sína Baggalúta út með vond lög og verri texta. Allir ljótir í heimskulegum búningum og föðurlöndum sínum til lítils sóma. Og þar sem ég gef mér það að Íslendingar, eins forheimskir og niðurgangsfúsir í að upphugsa eitthvað nýtt eru, sendandi Eirík út í kjölfar Lordis, þá munum við senda smámennin í Baggalúti út á næsta ári. Mað dapurlega köntrýtónsmíð og klisjukenndan texta sem gæti haft inntak um það að söngvari þeirra lúta þráir Sylvíu Nótt eftir að hafa séð hana fáklædda á sviðinu eða bara í banka eða eitthvað.
Skora á alla að sniðganga England, Baggalút og Skífuna sem gefur út svona rusl. Er farinn downotwn að drekka meira. Bæbæ!
Risinn missti höfuðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú veist að Risinn var franskur!!??
Jóna Á. Gísladóttir, 13.5.2007 kl. 10:59
Emil ert þú karlmaður?
Risinn fór sömuleið og svo margir aðrir Frakkar, í fallöxina.
Hrólfur Guðmundsson, 13.5.2007 kl. 12:43
Þú ert allavegana fullur af hormónum!
Hrólfur Guðmundsson, 13.5.2007 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.