Þar sem ég sofnaði frekar snemma í gær var ég mættur út í sjoppu rétt fyrir ellefu að fá mér hamborgaratilboð. Þegar ég kom út hélt ég fyrst að ég sæi söngkonuna úr GusGus vera að bogra yfir öskutunnunni fyrir utan sjoppuna, við hliðina á dekkjaverkstæðinu. Sá bara skrítin kjól og úfið hár og ljótustu skó ever en er konan réttir úr bakinu sá ég að þetta var bara víetnamska kerlingin sem safnar flöskum í hverfinu. Ég vinkaði henni. Ég held að við eigum einhverja blakkátfortíð saman.
Þegar ég kom inn var ég einmitt að lesa gömul blöð og horfa á sósuna af hammaranum leka ofan á fyrirsagnirnar þegar ég mundi að á miðvikudaginn lofaði ég einhverjum að fara með honum eða henni að hrofa á þessa Risessu. Og þrátt fyrir að klára matinn minn og fá mér sopa af svörtu kaffi og reykja nokkrar rettur get ég ómugulega muna hverjum ég ætlaði með að sjá þetta heimskulega ofvaxna leikfang? Tilhvers fer maður að sjá svona brúðudót? Ef einhver sem les þetta ætlaði með mér þá látið vita. Ég er farinn undir sæng aftur.
![]() |
Risessan lögð af stað í gönguför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ert með fyndnari mönnum.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 11.5.2007 kl. 12:21
Ég er farinn undir sæng, rauður af öllu þessu hóli. Takk samt.
Hrólfur Guðmundsson, 11.5.2007 kl. 12:26
Efastu um ágæti þess sem ég skrifa?
Hrólfur Guðmundsson, 11.5.2007 kl. 12:36
Lengi lifi Hrólfur Guðmundsson og hans blogg.
Magnús Paul Korntop, 11.5.2007 kl. 14:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.