Er ennþá hálf vankaður og þreyttur eftir gærdaginn og nóttina. Með blöðrur á tánnum og það sem verra er, ekkert til að drekka hérna heima og sól úti, lífið sem sagt bölvað og einhver maður með barn á bakinu að bjóðast til að gefa út eftir mig bækur ef ég skil hann rétt nema að þetta sé bara enn einn viðbjóðs tremminn.
Ef þetta er ekki tremmi þá er allt að stefna í það að ég verði ríkur og frægur. Og brátt á allra vörum. Og framan á öllum séð og heyrtbæklingum, nærbuxnalaus í alltof litlum kjól með bjánalega hárgreiðslu. Oj. Líf mitt fer versnandi.
![]() |
Mynd af Parísi undir stýri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Öll höfum við eitthvað á bakinu að bera, barn er ekki verra en hvað annað, t.d. fyrverandi konur, mömmur, eða bara okkar eigin fortíð.
Þröstur Unnar, 10.5.2007 kl. 15:53
Einus inni bar ég kassa af Beck´s yfir Krossá. Eða einhverja sprænu úti í sveit. Skulum kalla það á.
Hrólfur Guðmundsson, 10.5.2007 kl. 16:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.