Er svo hneykslaður yfir því að við sendum sem fulltrúa íslands þennann ólæsa villimann sem kemur fram í leðri og gefur djöflahornin með fingrunum framan í sjónvarpsmyndavélarnar. Mér finnst hann alls ekki góð landkynning (ekki fremur en Dimmuborgir eru fyrir frændur okkar í Noregi) og svo er hann líka hundgamall! Mér finnst að við hefðum átt að senda einhvern hipp og kúl sjarm út. Bogomil Font væri sko alveg málið!
Svo finnst mér að það eigi að banna allt svona metaldæmi með leiðindar gítarsólóum og öskrum og textum sem fjalla um áfengi og konur með stór brjóst. Femínistar ættu nú að taka við sér og púa á á Eirík Hauksson.
![]() |
Slegist um Eirík í Helsinki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Eiríkur verður borinn útaf sviðinu með hjartaflökt og svima, enda of gamall fyrir svona dæmi.
Hrólfur Guðmundsson, 8.5.2007 kl. 17:28
Rífist annarstaðar drengir, þetta blogg er fyrir friðsamt fólk!
Hrólfur Guðmundsson, 8.5.2007 kl. 18:52
Friðsamt? Konur eiga að púa hann af sviðinu??? Eiríkur of gamall???
Friðsamt my ass.
Hvaða poppara vilja menn þá sjá í staðinn, ef ekki Eirík?
Ólafur Þórðarson, 8.5.2007 kl. 21:52
Bogomil Font. Eða Dj Caruso.
Hrólfur Guðmundsson, 9.5.2007 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.