Hún mútta

Var alveg að drepast úr þynku eftir að ég skreið á fætur í dag.  Sat bara fyrir framan tölvuna og kúgaðist á milli þess sem ég reyndi að neyða ofan í mig nokkrum sopum af bjór.  Ekkert til að éta í eldhúsinu og minnugur þess að ég átti nokkur missed calls á símanum hringdi ég í mömmu.  "Geturðu hringt í mig!"  Hóf ég samtalið.  "Er það eitthvað sérstakt Hrólfur minn" svaraði mamma og bætti við "ég er á leið út."  Ég sagði henni að ég væri veikur og kæmist ekki út í búð til að kaupa í matinn og ekkert til að éta nema hrökkbrauð.  Hún æjaði nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti ekki látið hrökkbrauðið duga fram á morgun því að hún væri að flýta sér og mætti ómögulega vera að því að koma einhverstaðar við og kaupa í matinn fyrir mig og koma með hann í Seljahverfið.  Ég bar mig aumlega "mamma, ég hef ekkert borðaði í allan dag og bara ælt.  Núna hef ég ekki einu sinni gall til að æla." Grenjaði ég í henni.  Hún lét sig ekki e n bauðst til þess að leggja inn á mig 500 kalla fyrir pulsupakka.  ég bað hana um þúsund því að mig vantaði fyrir sígó líka. "Veistu hvað ég er búin að láta þig hafa mikið í þessum mánuði" spurði hún og tuðaði áfram "og eflaust hann pabbi þinn líka ef hann er aflögufær!" og spurði svo eitthvað um pabba.  Ég lagði á.  Vissi að hún mundi skutla á mig 2-3000 kalli.  Og það rættist og ég gat pantað mér pizzu og brauðstangir og kók.  Svo á ég kippu af pilsner 4,5% og nokkra slots litla í ísskapnum og pakka af winston og eitt og annað hérna svo ég er vel settur.  Elskan hún mamma.  Megi hún lengi lifa.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Vona að þetta sé skáldsaga

Jóna Á. Gísladóttir, 29.4.2007 kl. 00:18

2 Smámynd: Hrólfur Guðmundsson

Afhverju vonarðu það?  Er eitthvað að því sem ég er að blogga um?  ég kem ekki auga á það?

Hrólfur Guðmundsson, 29.4.2007 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband