Færsluflokkur: Bloggar
Topplaus Britney þakkar fyrirbænir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.5.2007 | 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Bloggar | 18.5.2007 | 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Var búinn að vera ómögulegur í dag og andlaus. Eigandi kassa af bjór og flösku af vodka síðan amma lét mig fá húsbyggingarstyrk en ekkert kass til að fara í bæinn. Horfði upp á það að þurfa að vera inni í þessu góða veðri og drekka fyrir framan tölvuna. Oj. Mamma óvenju fúl og svarar ekki hringingum mínum og mig grunar hana um að senda mig beint í talhólfið á gemsanum sínum. Ætli hana gruni að ég sá orðinn örlítið blankur?
Tók mig loks saman í andlitinu og læddist upp. Ætklaði að laumast í veskið hennar mömmu og nappa úr því fimmara en fékk allt í einu einhvern sting fyrir hjartað. Fannst sem ég ætti ekki að vera að fá arfinn svona hægt og rólega fyrirfram hjá mömmu. Djöfullinn var eiginlega að koma yfir mig? Stóð með veskið hennar mömmu í höndunum við hliðina á símanum hennar sem byrjaði einmitt að hringja. Mér dauðbrá og missti næstum veskið. Sú gamla kom út úr eldhúsinu og leit á mig með svo döprum svip að ég fann fyrir kökk í hálsinum. Hrólfur minn, sagði hún lágt, svo lágt að ég gat varla heyrt það, ef þig vanta pening skal ég gef þér hann. Ég gat ekki sagt neitt. Reyndi að koma uppúr mér: mig vantar ekki neitt, mamma mín, en það heyrðist varla. Svo tók mamma af mér veskið og fór út í bíl og ók í burtu. Ég gat séð hana bíta saman vörum fyrir aftan stýrið. Ég fékk mér einn kaldann og retykti. Vonaði að mamma yrði búin að jafna sig fljótt. Ekki svo löngu síðar kom mamma niður til mín og taldi á borðið hjá mér 45000 krónur og sagði: meira átti ég ekki Hrólfur minn, ég vona að þetta smáræði geri þig hamingjusamann.
Núna drekk ég og horfi á peningabunkann og langar ekki til þess að eiga þessa peninga eða eyða þeim. Ég heyri líka að mamma er að hlusta á Frank Sinatra á miklum styrk eflaust búin að fá sér staup, elsku gamla konan. Kannski hún fari að leita í áfengi vegna þess að hún hefur áhyggjur af mér? Hef ekki glóru um það en veit bara að mér finnst rangt að hafa af henni þessa peninga og mér finnst að ég ætti að bæta henni allt sem ég hef gert á hennar hálfu upp! Helvítis kerlingarnar á barnalandi.is hafa kannski rétt fyrir sér? Ég er kannski dusilmenni?
Fjársjóður fannst í sokknu skipi á botni Atlantshafs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.5.2007 | 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Svei mér þá ég skil alveg konuna, ég væri líka miður mín ef ég ætti þig og væri sennilega að harma að hafa ekki haft aðgang að fóstureyðingu á sínum tíma.
Hvernig væri nú að flytja frá mömmu, líta vandlega í spegilinn og gera svo raunhæfann lista yfir konur sem þú gætir hugsanlega náð í, tek fram að sennilega verður það stuttur listi. Amk ef myndin er eitthvað til að dæma eftir
Feitir, sveittir og latir alkar eru ekki beint það sem konur sækjast mest eftir , mér þykir miður að þurfa að upplýsa þig um þennan sannleika og særa þig örugglega í leiðinni en svona er lífið.
Ada Lovelace.
Svona ráðast þær á mig kerlingarnar af barnaland.is. Fullar af fordómum og dómhörku og skilja ekki eitt né neitt og neita að skilja það. Ég hef sko alveg séns og hef alveg litið í spegil. Ég var nú í þriðjasæti í herra Seljaskóli ´87 og þótt að ég hafi bætt á mig nokkrum kílóum og misst smá hár er ég ekkert ógeðsskrímsli eins og kerlingahrossin á fokkings barnalandi.is
Bloggar | 18.5.2007 | 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Bloggar | 17.5.2007 | 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Lögregla lýsir eftir konu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.5.2007 | 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Ekki grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 17.5.2007 | 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggar | 17.5.2007 | 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Arftaki Mengellu er mættur: Bjóðið Hrólf Guðmundsson velkominn
Hver man ekki eftir Mengellu? Aldrei kom í ljós hver var á bakvið þessa vel skrifandi og kjaftforu veru sem gerði allt vitlaust með hverri færslunni á eftir annarri.
Það sem einkenndi Mengellu var hversu vel skrifandi hún var. Þá var pólitísk rétthugsun ekki til í hennar heimi, sem var varð til þess að kommentakerfið á bloggsíðu hennar var troðfullt af fólki sem kepptist við að fara á taugum yfir ummælum hennar.
Mengella er hætt að blogga en nýr huldumaður er mættur á svæðið; Hrólfur Guðmundsson. Í þetta skiptið velur penninn þó að láta huldumanninn ganga undir nafni og birtir meira að segja af honum mynd. Hrólfi þykir ekki leiðinlegt að stuða:
Ein stelpa með kúrekahatt og risa tattú á bakinu sat við hliðina á horrenglu. Ég kannaðist við hana úr lesbískri femínistahljómsveit. Fannst góður biti vera farinn í hundskjaft þar. Á þessu balli var ekkert til þess að hösstla og eiginlega fátt sem dróg andan nema þá af gömlum vana.
Stórskemmtilegt er að lesa ævintýri Hrólfs, sem er eins og Mengella, afbragðs penni en töluvert óheflaðri og orðljótari en hún. Ólíkt Mengellu er Hrólfur framsettur sem hálfgerður lúser. Hann leigir hjá mömmu sinni og sendir hana ósjaldan út eftir pizzu og sígarettum. Þá drekkur hann óhóflega, ber enga virðingu fyrir konum og er í þokkabót atvinnulaus.
Hrólfur segist vera fæddur í Reykjavík árið 1972. Enginn Hrólfur Guðmundsson fæddist þetta ár samkvæmt þjóðskrá. Hann er feik, en stórskemmtilegt lestrarefni engu að síður.
Ég sá þetta á fokkings barnalandi.is og varð hissi og svo stoltur og svo varð ég frekar súr. Mér finnst illa að mér vegið í þessari færslu og það að enginn Hrólfur Guðmundsson hafi fæðst þetta ár sýnir nú að færslu ritari, gaur sem vinnur á Fréttablaðinu og ég man ekki hvað heitir og nenni ekki að gúgla, er með takmarkaðan aðgang. Haha... Lúser.
Mig langar samt að sjá hversu margir halda að ég sé ekki til? Og hver er ég þá? Vonandi ekki mamma og vonandi ekki Elísabet Ronaldsdóttir því að hún er svo leiðinleg.
Er farinn út í leigara. Sjáumst á dillon, líka þú rauðhærða.
Bloggar | 17.5.2007 | 01:00 (breytt kl. 01:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Á vefnum barnaland.is hanga feitustu og ljótustu og bólugröfnustu og verst lyktandi og bitrustu kerlingar sem heimurinn hefur alið síðan Herman Görning reynda að skipta um kyn með blásýrutöflu. Á þessum vef hanga þær og baknaga og niðra allt og alla. Svertingja, homma, gyðinga, rúmena sem spila á harmonikkur, hverja aðra og mig. Heilafatlaða Hrefna var þar löngum (komst að því síðar) og skrifaði trekk í trekk færslur um það hvað ég væri vondur, gagnlaus, fullur, spilasjúkur, blankur, heimskur, sköllóttur, feitur, kiðfættur, þjófóttur, lyginn, mömmustrákur...
Og dundaði sér við það á kvöldin að niðurlægja mig á meðan ég var á barnum að horfa á bolta með strákunum. Svo kom ég heim á næturnar og í stað þess að finna hana mjúka og raka uppi í rúmi sofandi, svo ég gæti velt henn á hliðina og másað í eyra hennar á meðan ég athafnaði mig, sat hún bitur með rauða hvarma og póstaði hverja færsluna á fætur annari um hvað ég (kallaður ASNINN) væri nú óþolandi. Svo þegar kerlingarófétin voru búin að segja henni það nógu oft í linkum við færslur hennar að ég væri ómögulegur, pakkaði hún niður og fór. Tók meira að segja Fowler 100 greatest goals og gaf frænda sínum bara til að skaprauna mér. Ég hata barnaland.is það hefur valdið fullt, fullt af skilnuðum og á eftir að valda.
Ég fer að hitta Reyni á Dillon um miðnætti ef einhver nennir. Svo er ég líka með msn. En ég nenni ekki þanngað inn núna. Ætla að hlusta á Queens of the stoneages og berja hausnum í vegginn.
Bloggar | 16.5.2007 | 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)